ATH - Myndaalbúmið er óvirkt hér en það er líka hér  |
|
|
Ásta fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi þann 25. september 2005 en mömmu hennar og pabba leist svo vel á aðstæður þar að þau ákváðu að hún skyldi koma í heiminn þar. Hún var 16 og hálf mörk og 53 sentimetrar. Þegar hún fæddist var hún með svart og mikið hár en núna er það alveg ljóst.
Bjarki fæddist heima í Marteinslauginni þann 4. apríl 2008. Hann var 13 merkur og 51 cm. Hann var með svart og mikið hár eins og systir sín þegar hann fæddist.
Foreldrarnir heita Anna Rós Ívarsdóttir og Steindór Örvar Guðmundsson. Við búum í Grafarholtinu í Reykjavík, næstum því úti í sveit. Ásta fékk nafnið sitt 29. október en hún er nefnd eftir ömmu sinni, Sigrúnu Ástu. Bjarki fékk sitt nafn 1. maí en það nafn er útí loftið en hann er samt nafni hennar Ollu Björk...  Endilega skiljið eftir kveðju, hér fyrir neðan. Skilja eftir kveðju (11 Kveðjur) |
|
|